
26 mar. 2025
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 61/2024-2025
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Juan Luis Navarro, leikmaður Snæfells sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks gegn Snæfelli sem fram fór þann 14. mars 2025.
Agamál 62/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Guðjón Logason, leikmaður Aþenu/Leiknis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Aþenu/Leiknis gegn Aftureldingu, sem fram fór þann 20 mars 2025.