19 mar. 2025

Miðasala á EuroBasket fer af stað skömmu eftir dráttinn í riðlanna sem verður fimmtudaginn 27. mars. Íslendingar munu hafa forkaupsrétt af miðum fyrstu fimm daganna eftir að salan fer í gang, er það vegna þess að við erum svokölluð co-host með Pólverjum. Það verður þannig að KKÍ mun gefa út hlekk að miðasölunni. Mun þetta verða einhvern tímann milli 27.-30. mars og verður tilkynnt um það sérstaklega.

 

Leikdagar eru 28., 30., 31. ágúst sem og 2. og 4. september. Leiktímar eru 14:00, 17:00 og 20:30 að staðaratíma, Pólverjar leika alltaf síðasta leik dagsins. KKÍ veit ekki leiktíma strákanna okkar fyrr en eftir að dregið hefur verið í riðla.  Miðasölu er skipt í tvennt, hægt er að kaupa einn miða fyrir fyrstu tvo leiki hvers dags og svo annan miða fyrir þann síðasta sem er þá alltaf leikur Pólverja.

 

Ef þannig fer að Ísland leiki við Pólland laugardaginn 30. ágúst verða einungis 1.500 miðar í boði fyrir Íslendinga, kemu það endanlega í ljós eftir að dregið verður í riðlanna  hvaða dag strákarnir okkar leika við Pólland.

 

Alla aðra leiki munum við hafa yfir 2.577 miða í það minnsta sem verða fyrir aftan bekk Íslands.

 

Verða þrjú verðsvæði í boði og skiptist það svona:

Svæði 1 – 95 euro

Svæði 2 – 75 euro

Svæði 2 – 50 euro

 

Frekari upplýsingar varðandi miðasöluna koma eftir 27.mars.