
18 mar. 2025
VÍS bikarvikan hefst í Smáranum í kvöld með tveimur leikjum. Um er að ræða undanúrslit í meistaraflokki kvenna í kvöld, þriðjudaginn 18. mars og undanúrslit karla annaðkvöld, miðvikudaginn 19. mars. Úrslitaleikir meistaraflokkana verða svo á laugardaginn 22. mars. Á fimmtudeginum, föstudeginum og á sunnudeginum eru bikarúrslit yngri flokka.
Hér fyrir neðan má sjá dagskrá bikarvikunnar 2025:
Þriðjudagur 18. mars
Njarðvík - Hamar/Þór - kl. 17:15
Grindavík - Þór Akureyri - kl. 20:00
Miðvikudagur 19. mars
KR - Stjarnan - kl. 17:15
Keflavík - Valur - kl. 20:00
Fimmtudagur 20. mars
KR - Haukar - 10. flokkur stúlkna - kl. 17:30
Stjarnan/KFG - Breiðablik/Grindavík - 12. flokkur karla - kl. 20:00
Föstudagur 21. mars
Stjarnan - Keflavík - 9. flokkur stúlkna - kl. 17:30
KR - Stjarnan - 10. flokkur drengja - kl. 19:45
Laugardagur 22. mars
Úrslitaleikur meistaraflokks kvenna - kl. 13:30
Úrslitaleikur meistaraflokks karla - kl. 16:30
Sunnudagur 23. mars
Stjarnan - Keflavík - 9. flokkur drengja - kl. 12:00
KR - Njarðvík - 12. flokkur kvenna - kl. 14:15
Stjarnan/KFG - Breiðablik - 11. flokkur drengja - kl. 16:45