/KKI%20logo%20-%20net%20-%20minni.png)
16 feb. 2025
A landslið karla leikur tvo leiki í undankeppni fyrir Eurobasket 2025. Sem stendur er Ísland í þriðja sæti riðils síns, en þrjú efstu sætin gefa þáttökurétt á lokamótinu sem fram fer í lok ágúst á þessu ári.
Sigur í öðrum hvorum leiknum, eða 4 stiga tap eða minna gegn Ungverjalandi kemur Íslandi áfram.
Liðið hélt á stað til Þýskalands í morgun þar sem liðið mun æfa næstu þrjá daga áður en farið verður yfir til Ungverjalands.
Leikdagar eru:
Ungverjaland - Ísland
Fimtudagur 20. febrúar kl 17:00 (að íslenskum tíma) í Szombathely í Ungverjalandi
Ísland - Tyrkland
Sunnudaginn 23. febrúar kl 19:30 í Laugardalshöll
Miðasala á heimaleikinn fer fram í gegnum Stubb, www.stubb.is.
Bjarni Guðmann Jónsson – Stjarnan – 3 leikir
Elvar Már Friðriksson - Maroussi Basketball Club – 72 leikir
Haukur Helgi Briem Pálsson – Álftanes – 76 leikir
Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan – 18 leikir
Jón Axel Guðmundsson - Hereda San Pablo Burgos – 34 leikir
Kári Jónsson – Valur – 34 leikir
Kristinn Pálsson – Valur – 35 leikir
Martin Hermannsson – Alba Berlin – 75 leikir
Orri Gunnarsson – Stjarnan – 9 leikir
Sigtryggur Arnar Björnsson – Tindastóll – 35 leikir
Styrmir Snær Þrastarson - Belfius Mons-Hainaut – 18 leikir
Tryggvi Hlinason - Bilbao Basket – 67 leikir
Ægir Þór Steinarsson – Stjarnan – 89 leikir
Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðaþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Viðar Örn Hafsteinsson