12 feb. 2025

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 48/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Nemanja Knezevic, leikmaður Hattar, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vals gegn Hetti, sem fram fór þann 7 febrúar 2025.

Agamál 49/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Matt Treacy, leikmaður Snæfells, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells gegn ÍA, sem fram fór þann 7 febrúar 2025.