29 jan. 2025Í dag fögnum við 64 ára afmæli Körfuknattleiksambands Íslands, en sambandið var formlega stofnað sunnudaginn 29. janúar 1961. Körfubolti hafði verið stundaður hér á landi um nokkurt skeið áður en kom að stofnun KKÍ, en eftir dugnað stórhuga baráttumanna tókst að setja KKÍ á stofn. Þeim eigum við mikið að þakka.