6 des. 2024

Allir með er verkefni íþróttahreyfingarinnar sem gengur útá að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn í íþróttum. Kannanir sýna að einungis 4% fatlaðra barna 17 ára og yngri eru í virku íþróttastarfi,   með Allir með verkefninu er stefnt að því að breyta þessu og fjölga fötluðum börnum í íþróttastarfinu.

Fest hefur verið kaup á 10 körfuboltahjólastólum  sem ætlaðir eru fyrir börn á aldrinum 7 – 14 ára. Boðið verður upp á hjólastólakörfubolta fyrir þennan aldur fljótlega eftir áramót og hafa nú þegar tvö félög lýst áhuga á að bjóða uppá þessar æfingar. Stólarnir verða geymdir í lokaðri kerru sem gefur tækifæri á því að ferðast með stólana og  bjóða upp á  æfingar á fleirum en einum stað.  Marel aðstoðar með að hanna búnað í kerruna þannig að allir stólarnir komast fyrir án þess að þurfa að taka þá í sundur. Með tilkomu stólanna verður hægt að bjóða börnum sem bundin eru hjólastól  upp á að stunda íþróttaæfingar.

 

Allar frekari upplýsingar um Allir með verkefnið veitir Valdimar Smári Gunnarsson valdimar@ifsport.is