28 nóv. 2024

KKÍ hefur þegið boð FIBA Europe um að leika í A deild U20 kvenna á á næsta ári. Ástæðan fyrir boði FIBA Europe er sú að eitt land dró sitt lið úr keppni A-deildar og samkvæmt reglum FIBA Europe er það liðið sem endaði í 4. sæti í B-deild þegar síðasta EM fór fram sem boðið er sætið. Það er mikil gleði að góður árangur liðsins í sumar hefur skilað okkur fyrsta A-deildarsæti/lokamóti í sögu kvennalandsliða okkar. Bæði U20 landslið okkar munu því keppa næsta sumar í A-deild EM sem er frábær árangur og sýnir vel þá uppbyggingu sem hefur verið undanfarin ár hjá aðildarfélögum KKÍ.