22 nóv. 2024
Davíð Tómas Tómasson dæmdi í gær leik Írlands og Azerbaijan í forkeppni fyrir forkeppni HM 2027 en leikið var í Írlandi.
Írar sigruðu 91-67 og stigahæstur þeirra var Jordan Blount sem lék með Þór Akureyri og Sindra um tíma.
Meðdómarar Davíðs voru Iain McDonald frá Bretlandi og Ioannis Tsibouris frá Grikklandi en eftirlitsmaður var Mark Patton frá Bretlandi.