14 nóv. 2024

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 8/2024-2025

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Skallagríms, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Skallagríms gegn Njarðvík, sem fram fór þann 3 nóvember 2024.

Agamál 9/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Sigurður Darri Pétursson, leikmaður Skallagríms, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Skallagríms gegn Njarðvík, sem fram fór þann 3 nóvember 2024.

Agamál 10/2024-2025

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Lars Erik Bragason, leikmaður KR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik KR gegn Stjörnunni/KFG, sem fram fór þann 5 nóvember 2024.