7 nóv. 2024
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 5/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Adama Darboe, leikmaður Ármanns, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Ármanns gegn Hamri, sem fram fór þann 1 nóvember 2024.
Agamál 6/2024-2025
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Fotios Lambropoulos, leikmaður Hamars, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Ármanns gegn Hamri, sem fram fór þann 1 nóvember 2024.
Agamál 7/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Alexander Þór Hafþórsson, leikmaður Fjölnis b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölni b gegn Álftanes b, sem fram fór þann 3 nóvember 2024.