7 nóv. 2024
Það er ekki bara íslenska kvennalandsliðið sem á verkefni í forkeppni EuroBasket í kvöld. Davíð Tómas Tómasson mun dæma leik Finnlands og Slóveníu sem fer fram í Helsinki.
Með honum dæma Paulina Gajdosz frá Póllandi og Sara Mansson frá Svíþjóð. Tæknifulltrúi FIBA er Eric Bertrand frá Sviss.