3 okt. 2024

Í kvöld hefst keppni í 1. deild karla þetta tímabilið með einum leik þegar Selfoss fær Þór Ak. í heimsókn. Annað kvöld fara síðan fimm leikir fram, Breiðablik tekur á móti KFG kl.17:45, Hamar fær KV í heimsókn, Fjölnir og Snæfell mætast í Dalhúsum, ÍA heldur á Hornafjörð og mætir Sindra og hefjast allir leikirnir kl.19:15. Lokaleikur umferðarinnar hefst síðan kl.20:30 þegar Ármann og Skallagrímur mætast í Laugardalshöll.

Sjáumst á vellinum!