2 okt. 2024

Eins og einhverjar hafa eflaust tekið eftir hafa verið smá hnökrar á því að hægt sé að opna tengla á lifandi tölfræði nú í fyrstu leikjunum.

Nú er vonandi búið að leysa það vandamál og því ættu allir að geta smellt á leiki kvöldsins og framtíðarinnar á kki.is og fylgst með tölfræðinni í beinni.