1 okt. 2024

Í kvöld hefst keppni í Bónus deild kvenna þetta tímabilið með þremur leikjum. Haukar fá nýliða Hamars/Þórs í heimsókn, Njarðvík tekur á móti Grindavík og Þór Ak. heimsækja Val í N1 höllina.  Annað kvöld er síðan nýliðaslagur þegar Aþena og Tindastóll mætast og Stjarnan tekur á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Keflavíkur. Allir leikir hefjast kl.19:15 og eru í beinni útsendingu.

Sjáumst á vellinum!