27 sep. 2024

Spá fyrir Bónus og 1. deildir var kynnt núna í hádeginu á Grand Hótel. Forsvarsmenn liða í 1. deild kvenna gera ráð fyrir að KR vinni sér sæti í Bónus deild kvenna og í 1.deild karla tryggir Hamar sér aftur sæti á meðal þeirra bestu í Bónus deildinni. Ríkjandi Íslandsmeisturum Keflavíkur og Vals er spáð Íslandsmeistaratitlinum vorið 2025.

BÓNUS DEILD KVENNA

Fjölmiðlaspá

Samkvæmt spá fjölmiðla verður það lið Keflavíkur sem hampar Íslandsmeistaratitlinum á komandi vori og lið Grindavíkur fylgir ekki langt á eftir. Það verður hlutskipti nýliða Aþenu að falla niður í 1. deild kvenna.

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða

Það verður Keflavík sem hampar þeim stóra næsta vor, gangi spá félaganna eftir en liðið fékk afgerandi kostningu í 1.sæti. Það mun verða hlutskipti Aþenu að falla niður í 1. deild kvenna.

Gangi spáin eftir þá lítur úrslitakeppnin svona út.

 

BÓNUS DEILD KARLA

Fjölmiðlaspá

Samkvæmt spá fjölmiðla verður það lið Keflavíkur sem hampar Íslandsmeistaratitlinum næsta vor, þó ekki muni miklu í spánni á þeim og Val. Það verður hlutskipti Hattar og nýliða ÍR að falla niður í 1. deild karla.

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða

Það verður Valur sem hampar þeim stóra næsta vor, gangi spá félaganna eftir en munar aðeins einu stigi á Val og Keflavík. Það mun verða hlutskipti Hauka og ÍR að falla niður í 1. deild

Gangi spáin eftir þá lítur úrslitakeppnin svona út.

1. DEILD KVENNA

Það verður hörð barátta á toppi 1. deildar kvenna og telja félögin að KR og Ármann séu líklegust að berjast um sæti í Bónus deild kvenna.

1. DEILD KARLA

Í 1. deild karla má búast við harðri baráttu á toppnum, en þó telja félögin að Hamar sé sigurstranglegast og muni endurheimta sæti sitt í Bónus deild karla. Það verða liðin í 2.-9. sæti sem munu berjast um hitt lausa sætið í Bónus deildinni.