10 sep. 2024

Klefinn og Helena Sverris bjóða í WNBA áhorfs party 15. september

Leikur Indiana Fever og Dallas Wings hefst klukkan 19:00, en viðburðurinn byrjar kl. 18:30. Gjafapokar verða gefins meðan birgðir endast og útdráttarleikur í hálfleik.

Helena Sverris ásamt fleirum munu fara yfir leikinn og helstu leikmenn liðanna, en Caitlin Clark ein stærsta stjarna WNBA leikur með Indiana Fever.

“Þetta hefur lengi verið draumur að vera með watch party fyrir WNBA og þessi hugmynd kom upp i spjalli við Silju Úlfars i hlaðvarpinu Klefinn og við ákváðum að láta verða af þessu. Okkur hlakkar til og ég vona að körfuboltastelpur og allir með áhuga á körfu fjölmenn. Caitlin Clark hefur komið eins og stormsveipur undanfarið ár og tekið áhugann á WNBA og kvennakörfu uppá næsta level um allan heim. Þegar við sáum að Fever væri að spila á hentugum tíma gaf það fullkomið tækifæri til að láta þetta verða að veruleika. Við vonumst til að sjá sem flest í Minigarðinum á sunnudaginn“ segir Helena Sverrisdóttir ein farsælasta körfuboltakona landsins.

Frekari upplýsingar um viðburðinn má sjá á facebook viðburði Klefans hér: https://fb.me/e/4LE0k1Z5B

Tilvalið að koma og borða með vinum og fjölskyldunni, 15% afsláttur verður á veitingum með kóðanum KLEFINN og hægt er að panta borð ef hópur vill sitja saman hér: https://www.minigardurinn.is/vidburdir

Silja Úlfars fyrrum afrekskona í frjálsum íþróttum heldur úti hlaðvarpinu Klefinn þar sem kafað er í hvernig á að ná árangri í íþróttum, hlusta má á þáttinn með Helenu hér: https://open.spotify.com/episode/5X3Gigd7WigfhEOZELoZBf?si=ac9401dc14ed4a94

Fjölmennum í Minigarðinn á sunnudaginn!