16 ágú. 2024

Fyrsta körfuboltamótið fyrir yngri flokka fer fram þann 31. ágúst næstkomandi þegar Ármann heldur 3x3 mót í Laugardalshöllinni fyrir 11-16 ára.

Mótið fer fram helgina 31. ágúst - 1. september næstkomandi og er fyrir árganga 2008-2013. Skráning fer fram á karfa@armenningar.is og er síðasti séns til að skrá sig 27. ágúst. Skráningargjald er 6.000 kr.

Ef að spurningar vakna varðandi mótið þá er hægt að hafa samband við karfa@armenningar.is.