25 júl. 2024

Á morgun föstudag 26. júlí er komið að því fyrir U18 ára strákanna okkar að hefja leik í B-deild U18 EuroBasket yngri landsliða. Mótið fram fer í Skopje í Norður-Makedóníu og mæta stákarnir okkar Sviss í fyrsta leik kl.14:00 að íslenskum tíma. Mótinu lýkur sunnudaginn 4. ágúst.

22 þjóðir taka þátt í B-deildinni í fjórum riðlum, strákarnir okkar eru í riðli með Eistlandi, Sviss, Póllandi, Ungverjalandi og Kosovo. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1-8, 9-16 og 17-22.

45 þjóðir taka þátt í U18 EuroBasket drengja , 16 þjóðir er í A-deild,  22 þjóðir í B-deild og 7 þjóðir í C-deild

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA U18 EuroBasket B-division:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-eurobasket-2024-division-b

Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

Lárus Jónsson þjálfari liðsins hafði þetta að segja:

“Undirbúningur hefur gengið ágætlega fyrir EM þar sem það var góður stígandi í liðinu á Norðurlandamótinu í Svíþjóð. Við gerðum eina breytingu á hópnum þar sem Logi Guðmundsson kemur inn fyrir Arnór Helgason sem hefur átt við meiðsli að stríða. Við notuðum NM til þess að verða betri sem lið og nú fáum við að sjá hvernig liðið smellur saman í Skopje. 

Það er erfitt að segja til um hvar við stöndum miðað við hinar þjóðirnar en við teljum en við teljum okkur vera jafnoka Eista sem við vorum í hörku leik við á Norðurlandamótinu, aðrar þjóðir höfum við ekki séð spila. Fyrsti leikurinn okkar er 26. júlí á móti Sviss sem eru með okkur í riðli ásamt Eistum, Kosovo, Póllandi og Ungverjalandi.” 

U18 drengja er skipaði eftirtöldum leikmönnum á EM

Ásmundur Múli Ármansson - Stjarnan
Birgir Leó Halldórsson - Sindri
Birkir Hrafn Eyþórsson - Selfoss
Frosti Valgarðsson - Haukar
Kristófer Breki Björgvinsson - Haukar
Lars Erik Bragason - KR
Logi Guðmundsson - Breiðablik
Lúkas Aron Stefánsson - ÍR
Magnús Dagur Svansson - ÍR
Stefán Orri Davíðsson - ÍR
Thor Grissom - Colony High School, USA
Viktor Jónas Lúðvíksson - Münster, Þýskaland

Þjálfari: Lárus Jónsson
Aðstoðarþjálfari: Ísak Máni Wium
Aðstoðarþjálfari: Friðrik Hrafn Jóhannsson
Sjúkraþjálfari: Alex Már Bjarkason