![Þór Þ./Hamar Íslandsmeistari í 12.flokki kvenna](/library/Myndir/islandsmeistarar-2024/12.fl.%20kvk%20-%20%c3%9e%c3%b3rHamar.jpg)
23 maí 2024
Sameiginlegt lið Þórs Þ. og Hamars í 12.flokki kvenna hampaði Íslandsmeistaratitli 18.maí síðastliðinn eftir sigur á KR. Þór Þ./Hamar unnu fyrsta leikinn á Meistaravöllum og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í Icelandic Glacial höllinni. Leikurinn fór 65-56 í æsispennandi leik. Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson.
Hildur Björk Gunnsteinsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17 stigum, 8 fráköstum og 3,5 stoðsendingum í úrslitaeinvíginu.
Til hamingju Þór Þ./Hamar!