30 mar. 2023
Stjórn KKÍ fól mótanefnd að ákvarða hvernig færslur yrðu á milli deilda eftir reglugerðarbreytingar á 55. Körfuknattleiksþingi. Þessar reglugerðarbreytingar hafa áhrif á fjölda liða í úrvalsdeild kvenna og 1. deild karla. Eftirfarandi var ákveðið.
Úrvalsdeild kvenna
- Sigurvegari úrslitakeppni 1. deildar kvenna færist upp um deild.
- 8. sæti úrvalsdeildar kvenna heldur sæti sínu í deildinni.
- Það lið sem tapar í úrslitum 1. deildar kvenna færist upp um deild.
1. deild karla
- Sigurvegari úrslitakeppni 2. deildar karla færist upp um deild.
- 10. sæti 1. deildar karla heldur sæti sínu í deildinni.
- Það lið sem tapar í úrslitum 2. deildar karla færist upp um deild.