7 mar. 2023

Nú er farið að styttast í úrslitakeppnir, jafnt hjá yngri flokkum sem meistaraflokkum. Í 9. flokki og upp í ungmennaflokk verða leikin undanúrslit innan hverrar deildar helgina 28. apríl til 1. maí, og lokaúrslit helgina 14.-17. maí. Þó verða úrslit 12. flokks leikin með öðrum hætti, þar sem liðin í úrslitum 1. deildar munu leika úrslitaseríu þar sem vinna þarf tvo leiki.

Nánari upplýsingar verða sendar um leikjadagskrá þegar nær dregur, en síðustu leikir í deildarkeppni yngri flokka fara fram 25. apríl.