23 feb. 2022

Frá stjórn KKÍ

Undanfarið hafa forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu borið forystu KKÍ þungum sökum. Ásakanir þessar hafa ekki borist frá félaginu til KKÍ heldur aðeins verið birtar í fjölmiðlum. KKÍ vísar á bug öllum ásökunum Aþenu um þöggun eða aðgerðarleysi varðandi kynbundið ofbeldi. KKÍ fordæmir allt ofbeldi og bendir á að tekið hefur verið á þeim málum sem borist hafa KKÍ með formlegum hætti.

Eftirfarandi atriði skulu áréttuð:

  • Árið 2009 var þjálfara kvennalandsliðsins sagt upp störfum vegna trúnaðarbrests. Sex árum síðar var viðkomandi endurráðinn til sambandsins og hefur hann frá þeim tíma starfað þar að fjölbreyttum verkefnum. Í ljósi umræðu síðustu daga hefur þjálfarinn að eigin ósk látið af störfum hjá sambandinu.

  • Árið 2014 lék einstaklingur tvo leiki með karlalandsliðinu eftir að hafa afplánað dóm vegna nauðgunar árið 2009. Ljóst má vera að forysta KKÍ tæki með öðrum hætti á slíku máli í dag.

  • Árið 2020 var dómara á vegum sambandsins sagt upp störfum eftir að þolandi leitaði til forystu KKÍ með upplýsingar um ósæmileg samskipti dómarans við leikmenn á samfélagsmiðlum.

Í ræðu formanns og skýrslu stjórnar á körfuknattleiksþingi 2021 kom skýrt fram að sambandið hefur sannarlega tekið á þeim ofbeldis- og áreitismálum sem komið hafa með formlegum hætti inn á borð þess. Þeir sem leita til sambandsins með mál sín geta treyst því að trúnaðar sé gætt. KKÍ er ávallt reiðubúið til samtals og samstarfs um hvernig efla megi traust í hreyfingunni. Mikilvægt er að brotaþolar geti fundið málum sínum farveg innan KKÍ, hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs eða hjá þar til bærum yfirvöldum. Stjórn KKÍ áréttar við körfuknattleikshreyfinguna að til að hægt sé að taka á málum verða þau að berast til KKÍ.

 

Stjórn KKÍ

Hannes S. Jónsson, formaður

Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, varaformaður

Birna Lárusdóttir, 2. varaformaður

Guðni Hafsteinsson, gjaldkeri

Einar Karl Birgisson

Erlingur Hannesson

Guðrún Kristmundsdóttir

Herbert S. Arnarson

Jón Bender

Lárus Blöndal