21 ágú. 2019Landslið karla í körfuknattleik leikur sinn síðasta leik í forkeppninni að undankeppni EM 2021 í kvöld þegar liðið leikur gegn Sviss í bænum Montreux. Leikurin í dag hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður leikurinn sýndur beint á RÚV2.
Íslenska liðið er í góðri stöðu fyrir leikinn en sigur gulltryggir efsta sæti riðilsins og sæti í undankeppni EM sem hefst í febrúar 2020. Með 20 stiga tapi eða minna fer Ísland einnig áfram á stigahlutfalli innbyrðist milli liðanna. Aðeins efsta liðið í riðlinum í forkeppnninni fer áfram í sjálfa undankeppnina.
Lið Íslands gegn Sviss í dag verður þannig skipað:
Nafn · Félagslið (landsleikir)
Frank Aron Booker · ALM Évreux, Frakkland (3)
Gunnar Ólafsson · Keflavík (17)
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík (45)
Hlynur Bæringsson · Stjarnan (128)
Hördur Axel Vilhjálmsson · Keflavík (81)
Jón Axel Guðmundsson · Davidson, USA (10)
Martin Hermannsson · Alba Berlin, Þýskaland (68)
Ólafur Ólafsson · Grindavík (35)
Pavel Ermolinskij · KR (72)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Valur (44)
Tryggvi Snær Hlinason · Zaragoza, Spánn (36)
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan (60)
Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfari: Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfari: Jóhannes Már Marteinsson
Formaður KKÍ: Hannes S. Jónsson
Afreksstjóri KKÍ: Kristinn Geir Pálsson
#korfubolti