8 jún. 2017Landslið kvenna hélt í morgun til Írlands í boði írska sambandins og mun leika tvo vináttulandsleiki við landslið þeirra. Stelpurnar eru nýkomnar frá Smáþjóðaleikunum og verður þetta síðasta verkefnið þeirra þangað til í haust. Þá mun liðið æfa síðar í sumar á nokkrum æfingahelgum.
Ívar Ásgrímsson og Bjarni Magnússon eru þjálfarar og gerðu þeir fimm breytingar frá hópnum á Smáþjóðaleikunum.
Inn koma þær Erna Hákonardóttir, Dagbjörg Dögg Karlsdóttir, Ragnheiður Benónísdóttir, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir. Þær sem hvíldar eru í staðin eru þær Birna V. Benónýsdóttir, Helena Sverrisdóttir, Sandra Lind Þrastardóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir.
Þær Dagbjört Dögg, Erna og Þóra Kristín eru allar að leika sínu fyrstu landsleiki fyrir kvennaliðið.
Nánari fréttir frá ferðinni ferða fluttar hér á kki.is og facebook-síðu KKÍ. Fyrri leikur liðanna verður í Cork á morgun föstudag og sá síðari í Dublin á laugardaginn.
Landslið Íslands gegn Írlandi · Júní 2017
Nafn | Staða | Hæð | F.ár | Lið | Landsleikir |
Ragnheidur Benónísdóttir | M | 188 | 1994 | Skallagrímur | 1 |
Hildur Björg Kjartansdóttir | F | 188 | 1994 | Snæfell | 15 |
Hallveig Jónsdóttir | B | 185 | 1990 | Valur | 10 |
Dagbjört Dögg Karlsdóttir | B | 171 | 1999 | Valur | 0 |
Ingunn Embla Kristínardóttir | B | 169 | 1995 | Grindavík | 12 |
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir | F | 181 | 1988 | Skallagrímur | 47 |
Thelma Dís Ágústsdóttir | F | 180 | 1998 | Keflavík | 5 |
Emelía Ósk Gunnarsdóttir | F | 179 | 1998 | Keflavík | 5 |
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir | M | 188 | 1991 | Keflavík | 4 |
Þóra Kristín Jónsdóttir | B | 173 | 1997 | Haukar | 0 |
Erna Hákonardóttir | B | 167 | 1993 | Keflavík | 0 |
Berglind Gunnarsdóttir | B | 177 | 1992 | Snæfell | 11 |
Þjálfari: Ívar Ásgrímsson
Aðstoðarþjálfari: Bjarni Magnússon
Styrktarþjálfari: Arnar Sigurjónsson
Sjúkraþjálfari: Silja Rós Theodórsdóttir