![Smáþjóðaleikarnir 2017 · Leikir dagsins föstudaginn 2. júní](/library/Myndir/gsse2017/landslidkvenna_sm0217_blatt.jpg)
2 jún. 2017
Þessa stundina eru íslensku stelpurnar okkar á leiðinni niður frá hóteli í íþróttahúsið þar sem þær hefja undirbúning fyrir leik dagsins. Hann byrjar kl. 10:30 að íslenskum tíma en það er leikurinn sem var færður í upphafi móts aftur á daginn í dag vegna aðstæðnanna sem sköpuðust við ferðalagið á leikana.
Leikurinn í dag er hreinn úrslitaleikur um annað sætið á mótinu og þar með silfrið. Malta hefur unnið alla leiki sína á mótinu og þar með gullið.
Strákarnir leika kl. 15:30 í dag gegn Lúxemborg. Þar munu verða breytingar á byrjunarliði okkar og spilatíma skipt vel niður á alla leikmenn.
SM2017 í dag:
Landslið kvenna mætir Lúxemborg kl. 10:30 að íslenskum tíma.
Landslið karla mætir einnig Lúxemborg kl. 15:30 að íslenskum tíma.
Lifandi tölfræði og útsendingar:
Dagskrá og úrslit og liðsskipan liða karla og kvenna er að finna á slóðinni www.sanmarino2017.sm/en/live-score/
Lifandi tölfræði frá öllum leikjum er að finna á www.statbasket.it
Hægt verður að sjá myndir og fleira í dag á facebook-síðu KKÍ og Instagram síðu KKÍ í dag á instagram.com/kkikarfa