![Þjálfaranámskeið KKÍ 2.c. · Dagskráin 26.-28. maí.](/library/Myndir/Auglysingar/banner_pesic.jpg)
10 maí 2017 KKÍ þjálfari 2.c er helgarnámskeið sem haldið verður dagana 26. til 28. maí 2017 og verður haldið í Ásgarði í Garðabæ.
Námskeiðið er samtals 20 kennslustundir. Áhersla er lögð á þjálfun barna og unglinga 17 ára og yngri, einstaklingsþjálfun og hvernig skuli byggja upp leikmenn og sérhæfa þá eftir leikstöðum. Farið er í tveggja og þriggja manna spil, mikilvægi á að hita upp og gera styrktar- og þolæfingar sérhæft fyrir körfubolta.
Aðalfyrirlesari námskeiðsins kemur á vegum FIBA en það er einn þekktasti, virtasti og sigursælasti þjálfarinn í evrópskum körfubolta, Svetislav Pešić.
Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:
Föstudagur 26. maí | |
17:00-17:10 · Setning | Ágúst Björgvinsson |
17:10-18:30 · Sókn - Hraðupphlaups leikur | Svetislav Pešić |
18:30-19:00 · Matarhlé | |
19:00-20:20 · Vörn - Hraðupphlaups leikur | Svetislav Pešić |
20:30-21:30 · Augu dómarans | Leifur Garðarsson |
Laugardagur 27. maí | |
09:00-10:20 · Sókn - Bolta hindrun (e. Pick & Roll) | Svetislav Pešić |
10:40-12:00 · Vörn - Bolta hindrun (e. Pick & Roll) | Svetislav Pešić |
12:00-12:40 · Matarhlé | |
12:40-14:00 · Varnarleikur | Ívar Ásgrímsson |
14:10-15:30 · Sóknarleikur | Friðrik Ingi Rúnarsson |
Sunnudagur 28. maí | |
09:00-10:20 · Meiðslafyrirbyggjandi æfingar og upphitun | Helgi Jónas Guðfinsson |
10:30-11:50 · Einstaklingsþjálfun, leikmanna | Benedikt Guðmundsson |
11:50-12:30 · Matarhlé | |
12:30-13:30 · Líkamleg þjálfun, hraða og senrpu þjálfun fyrir körfubolta | Helgi Jónas Guðfinsson |
13:40-14:20 · Skipulag þjálfunar | Ágúst Björgvinsson |
14:30-15:00 · Skriflegt lokapróf KKÍ Þjálfari 2 (20%) |
Þegar þjálfari hefur lokið og skilað öllum verkefnum verður þjálfari boðaður í útskrift og afhent þjálfaréttindi KKÍ þjálfari 2.
Dagskráröð birt með fyrirvara um breyttingar.