23 nóv. 2016

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál á fundi sínum í vikunni.

Mál nr. 11/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Friðbjörn Snorri Hrafnsson, leikmaður Fjölnis-b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvíkur-b og Fjölnis-b í 2. deild mfl. karla, sem leikinn var 19. nóvember 2016.
 
Mál nr. 12/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Haraldur Jón, leikmaður ÍR-b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍR-b og Stáls Úlfs í 3. deild mfl. karla, sem leikinn var 20. nóvember 2016.