17 nóv. 2016

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál fyrir í vikunni.

Mál nr. 8/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Grétar G. Hagalín, leikmaður ÍR-b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍR-b og Þórs Þorlákshöfn-b í 3. deild meistarflokks karla, sem leikinn var 12. nóvember 2016. 

Mál nr. 9/2016-2017: 

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Helgi Ingason, leikmaður Leiknis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik UMFH og UMFL í 2. deild meistarflokks karla, sem leikinn var 5. nóvember 2016".