10 ágú. 2016

Skráning er hafin í bikarkeppnir meistaraflokka, 1. deild kvenna, 2. og 3. deild karla, unglingaflokka og drengjaflokk fyrir keppnistímabilið 2016-17.

 

Skráning í bikarkeppni allra yngri flokka sem og yngri flokka sem keppa á fjölliðamótum og B-deild kvenna er 17. september.

 

Nánari upplýsingar um skráningarfyrirkomulag hafa verið send á aðilarfélög.

 

Ef nánari upplýsinga er óskað vinsamlega hafa samband við skrifstofu KKÍ.