10 ágú. 2016Í gærkvöldi lagði landslið karla af stað til Austurríkis þar sem strákarnir okkar munu taka þátt í sterku æfingamóti ásamt heimamönnum, Póllandi og Slóveníu. Mótið verður leikið dagana 12.-14. ágúst.

Alls fóru 14 leikmenn af 16 út ásamt þjálfurum og er hópurinn kominn á hótel í Vín í Austurríki þar sem leikið verður. 

Eftirtaldir leikmenn taka þátt í mótinu:


#  Nafn   ·   Leikstaða   ·   Fæðingarár   ·   Hæð   ·   Félagslið   ·   Landsleikir

4 Axel Kárason                                 PF 1983 192 cm Svendborg Rabbits (DEN) · 49
5 Ragnar Ágúst Nathanaelsson         C 1991 218 cm Þór Þorlákshöfn (ISL) · 35 
6 Haukur Helgi Pálsson                     F 1992 198 cm Rouen Metropole Basket (FRA) · 40 
7 Sigurður Gunnar Þorsteinsson      C 1988 204 cm Doxa Pefkon (GRE) · 47 
8 Hlynur Baeringsson                       C 1982 200 cm Sundsvall Dragons (SWE) · 95 
9 Jón Arnór Stefánsson                     SG 1982 196 cm Valencia (ESP) · 82
10 Ægir Þór Steinarsson                    PG 1991 182 cm San Pablo Inmobiliaria (ESP) · 32
11 Kristófer Acox                               PF 1993 196 cm Furman University (USA) · 3
12 Elvar Már Friðriksson                    PG 1994 182 cm Barry University (USA) · 11
13 Hörður Axel Vilhjálmsson             PG 1988 194 cm Rythmos BC (GRE) · 48
14 Logi Gunnarsson                            SG 1981 192 cm Njarðvik (ISL) · 121
15 Martin Hermannsson                     PG 1994 194 cm Étoile de Charleville-Mézéres (FRA) · 35
34 Tryggvi Snær Hlinason                 C 1997 215 cm Þór Akureyri (ISL) · 0
88 Brynjar Þor Björnsson                 SG 1988 192 cm KR (ISL) · 46

Þjálfari er Craig Pedersen og honum til aðstoðar Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson. 
Sjúkraþjálfari er Jóhannes Marteinsson og styrktarþjálfari er Gunnar Einarsson. 
Dómari frá Íslandi á mótinu er Sigmundur Már Herbertsson.

Aðrir leikmenn í æfingahópnum eru Darri Hilmarsson og Ólafur Ólafsson sem munu bætast í hópinn að nýju eftir mótið.

Nánari upplýsingar um lifandi tölfræði og fleiri fréttir munu birtast hér á kki.is þegar nær dregur móti.