5 júl. 2016Strákarnir okkar í Körfuboltasumrinu ætla eru farnir af stað og ætla að heimsækja nokkra staði á landsbyggðinni dagana 4.-9. júlí. Nánari dagskrá er að finna hjá félögunum á hverjum stað en þeir munu heimsækja þá krakka sem eru að æfa með sínum félögum.

Það eru landsliðsmennirnir Haukur Helgi Pálsson, Hörður Axel Vilhjálmsson og Martin Hermannsson sem sjá um verkefnið og þeir verða á eftirtöldum stöðum næstu daga:

4. júlí · Borgarnes
5. júlí · Stykkishólmur
6. júlí · Sauðárkrókur
7. júlí · Akureyri
9. júlí · Egilsstaðir (morguninn)
9. júlí · Höfn í Hornarfirði (kvöldið) 

Fylgist með!
Bætið korfuboltasumar við á Snapchat og fylgist með hvað þeir eru að bralla.
Einnig er hægt að fylgjast með mótinu á Facebook-síðu KKÍ og Instagram KKÍ undir ‪#‎korfuboltasumar‬