31 mar. 20168-liða úrslit karla klárast í kvöld í Ásgarði í Garðabæ en oddaleikur mun skera úr um það hvort það verður Stjarnan eða Njarðvík sem fara áfram í úrslitakeppninni í ár. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Áhorfendur hvattir til að mæta tímanlega á leikstað til að tryggja sér sæti.

Bæði lið hafa unnið tvo leiki hvort í seríunni. KR (1), Haukar (4) og Tindastóll (6) hafa tryggt sér miða í undanúrslitin í ár og því ráða úrslit kvöldsins hvaða lið mætast í næstu umferð. Efsta liðið (KR) fær alltaf það lið sem neðst er af þeim sem komast áfram.

Stjarnan (2) með sigri myndi því fá Hauka í undanúrslitunum en Njarðvík (7) myndi mæta KR.

Lifandi tölfræði verður á www.kki.is að venju og hægt verður að fylgjast með umræðunni á twitter undir #korfubolti og #dominos365.

Sjáumst á vellinum í kvöld!