21 mar. 2016

Stjarnan stendur fyrir hinu árlega Stjörnustríðsmóti sínu helgina 23.-24. apríl. Mótið er fyrir iðkendur fædda árið 2004 og yngri. Skráning fer fram á karfa@stjarnan.is. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 14. apríl. 

Stig eru ekki talin og verður því leikgleðin í fyrirrúmi. 

Mótsreglur
· Leiktími er 2x12 mínútur, nema í 6-7 ára þar sem leiktími er 1x12 mínútur
· 4 leikmenn eru inná í hvoru liði, nema í 6-7 ára þar sem 3 leikmenn eru inná
· Skipta má inná hvenær sem er á leiktímanum
· Leikið er eftir minniboltareglum KKÍ
· Stig eru ekki talin
· Vörn er ekki leyfð fyrir framan miðju
· Ef brotið er í skottilraun er gefið eitt vítaskot
· Lögð áhersla á að dómarar leggi sig fram og flauti hátt og skýrt.

Þátttökugjald er 2.500 kr á leikmann.