2 júl. 2015Næstkomandi laugardag verður dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumóts kvenna sem fer fram árið 2017 í Tékklandi. Ísland er skráð til leiks og er í fjórða styrkleikaflokki. Dregið verður í Munchen í Þýskalandi en fulltrúi Íslands á riðladrættinum verður Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ. Ásamt því að draga í undankeppni Evrópumótsins verður einnig dregið í Evrópukeppnir félagsliða kvenna. Eurocup og Euroleague. Hefst dagskráin kl. 13:15 að íslenskum tíma og er áætlað að henni ljúki um 14:30. Er þetta í fyrsta sínn frá undankeppninni 2009 sem Ísland er skráð til leiks. Ísland er í fjórða og neðsta styrkleikaflokki ásamt Hollandi, Lúxemborg, Sviss, Bosníu og Hersegóvínu og Albaníu. Dregið verður í níu riðla. Sex þeirra verða fjögurra liða og þrír þeirra þriggja liða. Efsta sætið í hverjum riðli fer áfram í lokakeppnina ásamt þeim sex liðum sem eru með bestan árangur í öðru sæti. Til að finna út hvaða lið standa best að vígi í öðru sæti verða úrslit leikja þess liðs sem endar í neðsta sæti í fjögurra liða riðlunum tekin út. Tékkland er komið áfram í i lokakeppnina þar sem þeir eru gestgjafar. Því er ljóst að stórþjóðir eru á leið til Íslands og nýkrýndir Evrópumeistarar Serba gætu verið eitt þeirra liða. Svíðþjóð er í öðrum styrkleikaflokki og Finnar í þeim þriðja. Undankeppnin fer fram í þremur gluggum og verður fyrsti glugginn núna í nóvember. Annar í febrúar á næsta ári og svo lokaglugginn í nóvember 2016. Leikið er heima og að heiman. Dagsetningar leikja: Gluggi 1 – leikdagar 21. og 25. nóvember 2015 Gluggi 2 – leikdagar 20. og 24. febrúar 2016 Gluggi 3 – leikdagar 19. og 23. nóvember 2016 Styrkleikaflokkur 1: 1. Serbía 2. Frakkland 3. Spánn 4. Hvíta-Rússland 5. Tyrkland 6. Rússland 7. Svartfjallaland 8. Litháen 9. Slóvakía Styrkleikaflokkur 2: 10. Grikkland 11. Króatía 12. Lettland 13. Svíþjóð 14. Ítalía 15. Úkranía 16. Ungverjaland 17. Pólland 18. Rúmenía Styrkleikaflokkur 3: 19. Bretland 20. Belgía 21. Slóvenía 22. Portúgal 23. Búlgaría 24. Ísrael 25. Þýskaland 26. Eistland 27. Finnland Styrkleikaflokkur 4: 28. Holland 29. Lúxemborg 30. Sviss 31. Bosnía og Hersegóvína 32. Albanía 33. Ísland