27 mar. 2015Leikur Tindastóls og Þórs Þ. í úrslitakeppni Domino´s deildar karla sem átti að hefjast kl.19:15 hefst kl.20:45 Ástæðan er sú að dómarar leiksins lentu í umferðaróhappi á Holtavörðuheiðinni á leið sinni norður. Blessunarlega eru þeir allir heilir á húfi og eftir samráð við KKÍ, eftirlitsmann, dómara leiksins og forráðamenn beggja liða var ákveðið að leikur kvöldsins færi fram með seinkun. KKÍ óskar dómurum leiksins sem og báðum liðum góðs gengis. Áhugsamir geta fylgst með leiknum bæði í beinni útsendingu á netinu á vef [v+]http://www.tindastoll.is/index.php?pid=1972 [v-]tindastoll.is[slod-] og hér á kki.is í lifandi tölfræði.