5 jan. 2015
Í dag verða veitt verðlaun fyrir bestu frammistöður í Domino's deildum karla og kvenna fyrir fyrri hluta keppnistímabilsins 2014-2015. Að venju verða fimm manna úrvalslið deildanna tilkynnt og verðlaun veitt fyrir besta þjálfarann og dugnaðarforkinn í báðum deildum. Besti dómarinn Domino’s deilda karla og kvenna í fyrri hlutanum verður einnig útnefndur. Verðlaunaafhendingin fer fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardal á 3. hæð og hefst kl. 12.00 og verður sýnt beint frá afhendingunni á SportTV.is.