17 ágú. 2014Bosnía og Ísland eigast við í undankeppni EuroBasket 2015 í kvöld kl. 18.00 að íslenskum tíma og verður hann í beinni útsendingu á RÚV íþróttir og lifandi tölfræði á fibaeurope.com. Leikurinn fer fram í Tuzla í Bosníu og er uppselt á leikinn fyrir nokkru en höllin tekur 5.000 manns í sæti. Bæði lið unnu sína fyrstu leiki, báða gegn Bretum og því mikilvægur leikur framundan.