2 ágú. 2014Íslenska U18 landslið karla lék í dag gegn Lúxemborg í krossspili þar sem barist var um að leika um níunda sætið á EM hér í Sofia í Búlgaríu. Íslenska liðið landaði 68-59 sigri og verður að segjast að þetta var daprasti leikur okkar manna í mótinu sem þó hertu sig varnarlega í síðari hálfleik sem skilaði öruggum sigri á endanum. Strákarnir hófu leikinn af krafti og komust í 13-2 en þá var eins og liðið færi í hlutlausan gír og hittni liðsins í fyrri hálfleik var afleit (10 af 40) og strákunum tókst ekki að skilja Lúxemborgarliðið eftir. Staðan í hálfleik var 32-27 fyrir íslenska liðið, sem átti mikið inni eftir fyrri hálfleikinn. Pétur Rúnar fékk vænt högg í hálfleiknum og fékk hann vænan skurð á kinnbeinið. Síðari hálfleikurinn fór samt ekkert vel af stað og um tíma komust Lúxemborg yfir enda baráttuglaðir strákar, en okkar menn leiddu 44-41 eftir þrjá leikhluta. Strákarnir afgreiddu leikinn þó snemma í fjórða leikhluta þegar þeir náðu mest 13 stiga forystu og héldu góðri forystu til loka leiks, en eins og áður sagði þá hafa strákarnir leikið betur í öllum leikjum mótsins til þessa. Sigurinn var þó fyrir öllu og drengirnir eru staðráðnir í að ljúka mótinu af krafti á morgun, en þá mæta þeir Norðmönnum öðru sinni í leik um níunda sætið í mótinu, en Norðmenn unnu Dani nokkuð örugglega fyrr í dag. Daði Lár Jónsson var sterkastur leikmanna Íslands í dag. Hann kom inn með mikinn kraft í síðari hálfleik og dró liðið áfram. Daði skilaði 5 stigum, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar og spilaði að auki hörku vörn. Jón Axel Guðmundsson var með 21 stig en hefur oftast hitt betur. Jón reif að auki niður 8 fráköst og stal 4 boltum. Kári Jónsson gerði 12 stig , tók 4 fráköst og gaf 3 stoðsendingar en tíu af tólf leikmönnum liðsins skoruðu að þessu sinni. [v+]http://u18men.fibaeurope.com/enDivB/cid_vxfp6gWIJ5oSOkc7ox4BA3.gameID_10091-74-A-1.compID_8aYeHlfuGF-mF5IqO8aFH1.season_2014.roundID_10068.teamID_.html[v-]Tölfræði leiksins[slod-] Leifur Sigfinnur Garðarsson dæmdi fyrr í dag leik Austurríkis og Hollands. Lokaleikurinn hjá strákunum á morgun er kl 15:15 að íslenskum tíma.