23 maí 2014Úrvalsbúðir KKÍ fara fram í sumar líkt og áður en búðirnar hafa tekist mjög vel en þangað eru efnilegstu leikmenn landsins boðaðir, stúlkur og strákar, sem fædd eru 2001-2003, af þjálfurum félaganna. Úrvalshóparnir eru undanfari yngri landsliða Íslands en yfirþjálfarar búðanna og ásamt gestaþjálfurum stjórna æfingum og fara yfir helstu tækniatriði. Æfingabúðirnar standa yfir tvær helgar í sumar: 24.-25. maí - Stúlkur í Smáranum, Kópavogi og drengir í DHL-höllinni Frostaskjóli. 23.-24. ágúst - Stúlkur í DB-Schenkerhöllinni Ásvöllum og drengir í Dalhúsum, Grafarvogi. Dagskráin er eftirfarandi fyrir laugardag og sunnudag, báðar helgarnar: Krakkar f. '03 kl. 09.00 – 11.00 (æfing) Krakkar f. '02 kl. 11.30 – 13.30 (æfing) Krakkar f .'01 kl. 13.30 – 16.30 (fræðslufundur kl. 13.30 + æfing frá kl. 14.30) Verð á hvern þátttakanda fyrir úrvalsbúðirnar er 6.000 kr. samtals fyrir báðar helgarnar og greiðist á staðnum hjá fulltrúa KKÍ. Hægt verður að greiða með korti á staðnum. Ekki er þörf að tilkynna sérstaklega mætingu en ágætt er að vita ef leikmenn komast bara aðra hvora helgina.