25 mar. 2014Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eitt mál í dag en samkvæmt reglugerð um aga- og úrskurðarnefnd skal hún kvödd saman um leið og kæra berst í úrslitakeppni og bikarkeppnum. Skal nefndin kveða upp úrskurð í málinu svo fljótt sem auðið er. Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 26/2013-2014 Með vísan til ákvæðis c. liðar 13. gr., sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Þorleifur Ólafsson , leikmaður Grindavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshöfn og Grindavíkur í Domino´s deild karla, sem fram fór þann 23. mars 2014.