19 mar. 2014Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í dag. Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 25/2013-2014. Með vísan til ákvæðis b. liðar 13. gr., sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Andy Johnston, þjálfari Keflavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells og Keflavíkur í Dominosdeild mfl. karla, sem fram fór þann 16. mars 2014. Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 24/2013-2014. Með vísan til ákvæðis a. liðar 13. gr., sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóli, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls og Hauka á Íslandsmóti - drengjaflokki,sem fram fór þann 1. mars 2014.