3 mar. 2014Lokahóf KKÍ verður í veislusölum Laugardalshallarinnar föstudaginn 9. maí. Lokahóf KKÍ fyrir árið 2013-2014 verður haldið þann 9. maí næstkomandi og verður dagskráin og snið hófsins með svipuðu móti og á síðasta ári, en það þótti takast með eindæmum vel. Boðið verður upp á glæsilegt smáréttar hlaðborð og auk þess sem bestu leikmenn ársins verða verðlaunaðir fyrir tímabilið og til gamans verða skemmtiatriði og fleira sem tilkynnt verður síðar.