19 feb. 2014Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir þrjú mál á fundi sínum í dag. Agaúrskurður nr. 18/2013-2014. Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Oddur Benediktsson, þjálfari Hamars, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls og Hamars í 1. deild Íslandsmóts karla, sem fram fór 14. febrúar 2014. Agaúrskurður nr. 19/2013-2014. Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari KR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik UMFN og KR í úrvalsdeild kvenna, sem fram fór þann 16. febrúar 2014 Agaúrskurður nr. 20/2013-2014. Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Friðrik Hjálmarsson, leikmaður ÍR, sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍR og Tindastóls í unglingaflokki á Íslandsmóti karla sem fram fór þann 16. febrúar 2014.