12 feb. 2014Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir þrjú mál á fundi sínum í dag. Agaúrskurður nr. 15/2013-2014 Með vísan til ákvæðis c. liðar 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Baldur Þór Ragnarsson, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshafnar og Keflavíkur, í úrvaldsdeild karla, sem fram fór þann 7. febrúar 2014. Agaúrskurður nr. 16/2013-2014 Með vísan til ákvæðis c. liðar 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Mike Cook, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshafnar og Keflavíkur, í úrvaldsdeild karla, sem fram fór þann 7. febrúar 2014. Kærumál nr. 2/2013-14 Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir kærumál þar sem Kkd. Keflavík kærði KKÍ framkvæmd bikarleiks Tindastóls og Keflavíkur í unglingaflokki karla. Krafa Keflavíkur byggðist á því að ekki hafi verið rétt staðið að því að raða dómurum á leikinn. ÚRSKURÐARORÐ: Úrslit í leik Tindastól og Keflavíkur í bikarkeppi unglingaflokks, sem fram fór 28. janúar 2014, eru ógild. Leikurinn skal endurtekinn svo fljótt sem kostur er. Sjá má allan úrskurðinn [v+]http://www.kki.is/skjol/urskurdur_tind_kef.pdf [v-]hér[slod-].