30 jan. 2014Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál á fundi sínum í vikunni. "Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 12/2013-2014. Með vísan til ákvæðis b. liðar 13. gr., sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Erik Olson, þjálfari FSU, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Akureyri og FSU á Íslandsmóti 1.deild - mfl., sem fram fór þann 17. janúar 2014" "Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 13/2013-2014. Með vísan til ákvæðis a. liðar 13. gr., sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ármann Vilbergsson, Skallagrími, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Skallagríms og Stjörnunnar í úrvalsdeild karla, sem fram fór þann 23. janúar 2014" Önnur mál sem eru inni á borði hjá nefndinni verða afgreidd síðar.