14 jan. 2014KKÍ og [v+]http://einfalt.is/ [v-]einfalt.is[slod-] stóðu fyrir netkosningu í desember á byrjunarliðum karla og kvenna fyrir Stjörnuleikina 2014, en Stjörnuleikshátíð KKÍ fer fram 25. janúar í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Nú er kosningunni lokið og komið í ljós hvaða leikmenn íslenskir körfuboltaaðdáendur kusu oftast. Það voru bestu leikmenn Domino's deildar karla og kvenna í fyrri hlutanum sem hlutu flest atkvæði í kosningunni en það eru þau Elvar Már Friðriksson, Njarðvík, og Lele Hardy, Haukum, sem fengu viðurkenningu á dögunum fyrir frábæra frammistöðu fyrir áramót í deildinni. Þjálfarar liðanna eru þeir þjálfarar í Domino's deildum karla og kvenna sem voru efstir um áramótin sem eru þeir Finnur Freyr Stefánsson, KR og Andy Johnston, Keflavík hjá körlunum. Hjá konum eru það þeir Ingi Þór Steinþórson, Snæfell, og Andy hjá Keflavík sem þjálfa. Liðunum skipt á víxl í tvo hópa, þannig að efsta liðið leikur með liðum í oddasætum og liðið í öðru sæti með liðum í sléttum sætum. Liðin er því skipuð eftirfarandi leikmönnum og þjálfurum: Byrjunarlið Stjörnuleiks kvenna: Icelandair-liðið Þjálfari Andy Johnston, Keflavík. Lið: (Keflavík, Grindavík, KR, Haukar) Leikmenn: Lele Hardy, Haukar · 332 atkvæði Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík · 187 atkvæði Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík · 176 atkvæði Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR · 155 atkvæði María Ben Erlingsdóttir, Grindavík · 144 atkvæði Domino's-liðið Þjálfari Ingi Þór Steinþórsson, Snæfell Lið: (Snæfell, Valur, Hamar, Njarðvík) Leikmenn: Hildur Sigurðardóttir, Snæfell · 269 atkvæði Chynna Unique Brown, Snæfell · 180 atkvæði Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfell · 177 atkvæði Kristrún Sigurjónsdóttir, Valur · 133 atkvæði Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Snæfell · 122 atkvæði Byrjunarlið Stjörnuleiks karla: Icelandair-liðið Þjálfari Andy Johnston, Keflavík. Lið: (Keflavík, Njarðvík, Stjarnan, Snæfell, Valur, Skallagrímur) Leikmenn: Elvar Már Friðriksson, Njarðvík ·  594 atkvæði Michael Craion, Keflavík · 421 atkvæði Logi Gunnarsson, Njarðvík · 374 atkvæði Justin Shouse, Stjarnan · 323 atkvæði Jón Ólafur Jónsson, Snæfell · 294 atkvæði Domino's-liðið Þjálfari Finnur Freyr Stefánsson, KR Lið: (KR, Grindavík, Haukar, Þór Þ., ÍR, KFÍ) Leikmenn: Martin Hermannson, KR · 513 atkvæði Pavel Ermolinskij, KR · 496 atkvæði Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Þór Þ. · 330 atkvæði Terrence Watson, Haukar · 256 atkvæði Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík · 215 atkvæði