5 nóv. 2013Á eftir kl. 14.00 verður dregið í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í 16-liða úrslit karla og kvenna. Í keppni kvenna eru 14 lið skráð til leiks og því 2 sem sitja hjá í fyrstu umferð sem þýðir að dregin verða 12 lið í 6 viðureignir og svo bætast þau tvö sem sitja hjá í 8-liða úrslitin. Hjá körlum eru 32-liða úrslitunum lokið og það verða 16 lið í skálinni góðu síðar í dag. Liðin sem er eftir í Poweradbikarnum: Konur: Breiðablik, Fjölnir, FSu, Grindavík, Hamar, Haukar, Keflavík, KR, Njarðvík, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri. Karlar: FSu, Fjölnir, Grindavík, Haukar, ÍG, ÍR, Keflavík, Keflavík-b, Njarðvík, Reynir Sandgerði, Skallagrímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn.