30 okt. 2013FIBA hefur nú auglýst eftir sjálfboðaliðum til að starfa í kringum HM 2014 sem fram fer á Spáni. Ef þú ert 18 ára átt þú kost á að fylla út umsókn og freista gæfunnar. Leitað er að starfsmönnum [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fe/14/wcm/event-guide/p/volunteers_work_areas.html [v-]í hin ýmsu störf[slod-] í kringum þetta risavaxna mót, allt frá hefðbundnum þjónustustörfum upp í tæknilega aðstoðarmenn. FIBA tekur fram að fyrir utan reynsluna og einstaka upplifununa sé það gott á ferilskrá einstaklinga að vera valinn til þátttöku í verkefninu. Sem dæmi má nefna að leitað er að spænskumælandi einstakling sem sé einnig góður í enskri tungu. Sá aðili gæti fengið það hlutverk að vera aðstoðarmaður og tengiliður eins af liðunum á mótinu og er skýrt tekið fram að hann verði með liðinu öllum stundum í kringum æfingar og leiki. Ekki amalegt að aðstoða til dæmis lið Bandaríkjanna fyrir körfuboltasjúka áhugamenn. Nánar er hægt að lesa um skilyrði og hæfniskröfu í [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fe/14/wcm/event-guide/p/volunteers.html [v-]umsókn sjálfboðaliða fyrir HM2014 hérna[slod-].