3 sep. 2013Þeir sem hafa áhuga á geta keypt aðgang á sjónvarpsvef FIBA og fylgst með allri EuroBasket keppninni sem hefst á morgun í Slóveníu. Slóðin er [v+]http://www.livebasketball.tv/home [v-]livebasketball.tv[slod-]. Um er að ræða alla leiki keppninnar. Auk þess fylgir í áskriftinni Euroleague, Euroleague kvenna, HM á næsta ári og Ólympíu-undankeppnir þegar þær eru auk allra annara álfukeppna og deilda í hinum ýmsu löndum. Mánaðaráskrift er á €11.99 (1.900 ISK) sem dugir út EuroBasket sem stendur yfir dagana 4.-22. september. Hægt er að kaupa beint ársáskrift en þá er mánuðurinn á €7.9. Fyrstu leikir hefjast á morgun og meðal áhugaverðra leikja má nefna Tyrkland-Finland kl. 12.30, Spán-Króatíu, Makedóníu-Svartfjallaland og Svíþjóð-Grikkland kl. 15.45 og svo Rússland-Ítalíu og Serbía-Litháen kl. 19.00. Livebasketball.tv býður upp á góð gæði og öfluga strauma, hægt er að horfa á allt að fjóra leiki í einu á skjánnum og fleira skemmtilegt fyrir körfuboltaþyrsta aðdáendur.